Það er klassík að horfa á hina ýmsu annála í sjónvarpinu á Gamlárs.
Því datt mér í hug að gera annál yfir það sem ég hef tekið mér fyrir hendur á árinu 2012.
Eða því sem ég hef bloggað um því það er ekki allt sem kemst á bloggið.
Ég litaði einband með Kool-Aid og heklaði mér Kríu.
Ég gat hins vegar ekki notað hana því mig klæjar undan einbandinu.
Svo seinna á árinu þæfði ég Kríuna og bjó mér til nálapúða.
Svo seinna á árinu þæfði ég Kríuna og bjó mér til nálapúða.
9. febrúar fæddist Móri minn og var það án efa hápunktur ársins.
Ég heklaði utan um herðatré og gaf í afmælisgjöf.
Og ég kláraði krosssaumsmynd af Íslandi.
Hún hafði legið ofan í skúffu í mörg ár.Þetta var frekar stórt afrek.
Hún hafði legið ofan í skúffu í mörg ár.Þetta var frekar stórt afrek.
Ég saumaði út klósettvísu handa kæró.
Saumaði út Færeysk prjónamunstur.
Og saumaði út fæðingarmyndir handa strákunum mínum.
Heklaði hringsmekki handa Aþenu og Móra. Þeir reyndust vera alltof litlir og því lítið notaðir.
Saumaði líka út í smekki handa Aþenu og Móra.
Í apríl var ég greinilega róleg því eina sem ég bloggaði um voru smekkirnir
sem ég heklaði handa Aþenu sem slefaði út í eitt á þessum tíma.
sem ég heklaði handa Aþenu sem slefaði út í eitt á þessum tíma.
Gerði ég heiðarlega tilraun til að prjóna vettlinga en gafst upp.
Reyni kannski aftur 2013.
Reyni kannski aftur 2013.
Ég byrjaði á Keðjuverkunarteppinu handa Jóhönnu systur.
Heklaði Star Wars húfu á Móra.
Graffaði á Grenivík
Heklaði nýjar týpur af krukkum
Heimsótti graff sem ég hengdi upp fyrir ári síðan
Bjó til barnamauk í massavís.
Kláraði Keðjuverkunarteppið hennar Jóhönnu
Heklaði peysu innblásna af íslensku lopapeysunni.
Heklaði ungbarnapeysu úr Þóru heklbók
Heklaði sexhyrningateppi sem ég kalla Advania
Kenndi Jóhönnu systur að hekla
Undirbjó strætógraff
Heklaði utan um FULLT af litlum krukkum
Var memm í að graffa strætó.
Rammaði inn krosssaumsmyndir og hengdi upp í herberginu hans Móra.
Þær höfðu legið ofan í skúffu síðan ég saumaði þær
handa Mikael fyrir tæpum 12 árum.
Viðtal við okkur systur birtist í Morgunblaðinu.
Setti upp myndavegg.
Óf fyrir skólann
Varð 3tug og fékk fullt af garni í afmælisgjöf meðal annars.
Heklaði og stífaði snjókorn.
Þæfði helling fyrir skólann.
Óf meira fyrir skólann.
Byrjaði að hekla CAL teppið.
Prjónaði krukkur og bjöllur.
Byrjaði á Lævirkjateppinu
Heklaði risamottu úr Zpagetti garni
Saumaði fígúrur fyrir skólann
Kláraði Lævirkjateppið (reyndar í lok nóvember)
og gaf litlum herramanni.
og gaf litlum herramanni.
Heklaði dúka í massavís.
Og fleira dúllerí
Heklaði utan um nokkrar jólakúlur og dáðist að þeim
Þakka öllum þeim sem lesa bloggið mitt kærlega fyrir innlitið á árinu
og vona að þið hafið haft gagn og gaman af.
Ég veit að ég skemmti mér allavegana mjög vel.
Hlakka til að sýna ykkur meir af handavinnu á nýja árinu.
Elín Handóða c",)