Að hekla teppi er alltaf uppáhalds hjá mér. Nýjasta teppið mitt er Lævirkinn sem ég heklaði handa litlum manni sem kom í heiminn 29. nóvember.
Ég notaði Kambgarn og heklunál nr. 3,75. Kærastinn valdi litasamsetninguna. Ég er víst of crazy í litavali fyrir suma. Ég er mjög ánægð með litavalið hjá honum og finnst teppið ótrúlega fallegt þótt ég segi sjálf frá.
Þar sem mér finnst skemmtilegt að íslenska hluti þá kýs ég að kalla teppið Lævirkjann og aðferðina Lævirkjahekl. Þetta hekl kallast á ensku Larksfoot og Lark er fuglinn Lævirki.
Hér er svo litli herramaðurinn Ásbjörn Askur með teppið sitt á leiðinni út í kuldann.
Glæsilegt teppi. Hvað kostar uppskriftin hjá þér?
ReplyDeletekv Rebekka
Svakalega fallegt teppi. Hvað kostar uppkriftin?
ReplyDeleteKv. Margrét.
Uppskriftin kostar 500 kr.
ReplyDelete