Graff

Hekl-Graff er yndislegt fyrirbæri.
Það er ekki einungis bundið við hekl auðvitað.
Það er hægt að gera Prjón-Graff líka.
Og Krosssaums-graff.

Ég sá þetta fyrst á Flickr-inu hjá Mmsquerade árið 2009
og varð algerlega ástfangin.
Ég var ekkert smá svekkt að hafa misst af þeim
þegar þær voru hérna á Íslandi seinasta sumar.

Ég hef gert nokkur gröff...langar ekkert smá að gera meira!

#1
júlí 2009
Útsýnispallur við Tjörnina.
Graffið var uppi í 2 vikur.





#2
ágúst 2009
Undirgöngin við Miklubraut.
Graffið hékk uppi í næstum 2 ár, en það var tekið niður um mitt árið 2011.





#3
ágúst 2009
Stytta í litlum garði við Laufásveg.
Graffið var ekki uppi lengi. Nokkra daga.





#4
júní 2011
Vesturgata
Þetta graff var gert úr illa fengnu garni.
Barnsfaðir minn á ketti sem eru mjög þjófóttir
og komu þeir heim með hvorki meira né minna
en 4 dokkur af sama garninu í sömu vikunni.








#5
júní 2011
Flókagata.
Í tilefni International Yarn Bombing Day þann 11.6.11.
Og til heiðurs móður minni sem átti afmæli þann dag,
en graffið var sett fyrir utan heimilið hennar.











Graff sem ég hef fundið
Þið vitið ekki hvað það gerir mig hamingjusama þegar ég finn graff á förnum vegi.
Hreinlega bjargar deginum mínum c",)

Gunnarsbraut - júlí 2010

Við Ráðhúsið - ágúst 2010

Laugavegur - mars 2011

Vesturgata - apríl 2011

Vesturgata - apríl 2011

Kennó Stakkahlíð - apríl 2011

Vesturgata - maí 2011

Laugavegur - júní 2011

 Norðurstígur - maí 2011

 Norðurstígur - maí 2011

 Norðurstígur - maí 2011

Góða Hirðinum - júní 2011

Í miðbænum - ágúst 2011

Við Ráðhúsið - september 2011

Við Ráðhúsið - september 2011


Tjarnargötu - september 2011