24 July 2012

Hitt og þetta

Um þessar mundir er ég að vinna að verkefni sem verður ótrúlega spennandi að sjá útkomuna á. Ég er í hóp af handavinnufólki sem ætlar að graffa heilan strætó. Það er öllum velkomið að vera með í þessum hópi okkar - svo ef þú hefur áhuga smelltu þá hér og vertu memm.

Í stað þess að hekla e-ð nýtt þá fór ég ofan í kassa og fann dúllur úr hálfkláruðum verkum sem hafa legið þar í ár eða lengur. Að svo stöddu er ég komin með fjórar sessur og eitt bak - sem sé á strætósæti.



Ég fann 28 þríhyrninga sem ég ætla að gera lengju úr.



Og 22 jólahjörtu sem fara líka í lengju. 



Ég er að kenna Jóhönnu systur minni að hekla.
Aþena dóttir hennar hjálpaði mömmu sinni samviskusamlega
að athuga hvort það væru nokkuð flækjur í garninu.



"Get ekki betur séð en að garnið sé í lagi"


Afrakstur æfingarinnar var þessi stórglæislegi hálsklútur c",)


Nú er systir mín byrjuð á alvöru verkefni
og stefnir á að klára eitt stykki Hexagon peysu úr Þóru heklbók.



1 comment:

  1. Gaman ad sja tetta. Stræto verdur flottur med tinni hjalp og Atena verdur godur heklari eda prjonari einn daginn :)

    ReplyDelete