Ég lendi hins vegar oftast í veseni því ég finn aldrei garntegund sem er með alla þá liti sem mig langar í. Það er kannski óraunhæft að ætlast til þess. En mér finnst það frekar súrt hvað það er erfitt að finna fallega, bjarta, skæra liti sem svona poppa...en ég er ekki að meina neon. Ef þið skiljið hvað ég meina.
Núna um daginn var ég að fara að byrja á verkefni og var með nokkrar myndir sem mig langaði að styðjast við.
Eigandi: Pricillas |
Eigandi: ...yarnroundhook... |
Eigandi: Vickie Howell |
Eigandi: Kristibee1 |
Eigandi: Emma Lamb |
Ég ákvað að nota Kambgarn í verkefnið og arkaði af stað í Hagkaup í Skeifunni til að finna garn. Kannski var bara lélegt úrval þar en mér fannst ég ekki finna litina sem ég leitaði að. Það eru margir fallegir litir í Kambgarni en þeir eru allir frekar daufari en það sem ég var að leita eftir. Sem er allt í lagi líka en ekki alltaf.
Þetta eru svo litirnir sem ég endaði með:
Hvað finnst ykkur? Finnst ykkur erfitt að finna garntegund sem hefur breitt, fallegt og bjart litaúrval? Kannski þið getið mælt með e-u garni?
Það er svo fyndið að segja frá því að ég var svo djúpt sokkin í þessar garnpælingar mínar í Hagkaup að ég lagði símann minn frá mér í hilluna og skildi hann eftir þar. Var komin alla leið upp á Snorrabraut þegar ég fattaði það. En sem betur fer var e-r heiðarlegur og fór með símann í þjónustuborðið og ég fékk hann aftur c",)
Ég hef svo oft lent í veseni með liti, ég er alveg með einhverja liti í hausnum og svo finn ég oft ekkert í líkingu við það. Ég er mikið fyrir sterka skæra liti en mér finnst litirnir sem eru hér í búðum oft svo útjaskaðir og daufir. Sérstaklega finnst mér erfitt að finna fallega græna liti, þeir eru oftast annaðhvort pastelgrænir eða mosagrænir, aldrei fallega skærgrænir. Pirrandi :/
ReplyDeleteAlveg sammála þér Anna, útjaskaðir og daufir eru prýðis lýsingarorð fyrir suma af þessum litum.
DeleteÞetta með grænan lit er alveg rétt hjá þér líka. Mamma hefur oft kvartað yfir þessu.
Er sammála með kambgarnið, úrvalið er mjög takmarkað og fannst lita breytingin ekki jákvæð sem var gerð á síðasta ári (minnir mig?), eins og þetta garn er yndislegt og ódýrt líka.
ReplyDeleteFinnst "plum" fjólublái mjög sætur þarna á neðstu myndinni :-)
Skil nefninlega ekki afhverju þeir eru ekki með fleiri liti. Sumar litirnir sem þeir komu með seinasta sumar eða þar áður sýna og sanna að það er vel hægt að hafa skæra bjarta liti.
Delete