1. Byrjið á að gera upphafslykkjur, sláið garninu yfir nálina (garnið yfir) og stingið nálinni í fjórðu loftlykkju frá nálinni.
2. Dragið garnið í gegnum lykkjuna, þá eru þrjár lykkjur á nálinni. Garnið yfir og dragið í gegn um fyrstu tvær lykkjurnar, þá er tvær lykkjur á nálinni.
3. Garnið yfir og dragið í gegnum lykkjurnar tvær sem eru á nálinni, þá er ein lykkja eftir á nálinni. Einn stuðull hefur verið gerður. Endurtakið út umferðina, heklið stuðul í hverja lykkju. Í lok umferðarinnar eru heklaðar þrjár loftlykkjur til þess að snúa (um snúningslykkjur sjá hér). Sleppið fyrstu lykkjunni, heklið stuðul í aðra lykkju umferðarinnar og í hverja lykkju fyrri umferðar. Seinasta spor hverrar umferðar er svo heklað í efstu snúningslykkju fyrri umferðar.
Ísl - Stuðull (st)
US - Double crochet (dc)
UK - Treble (tr)
DK - Stang maske (stm)
Myndirnar og hluta textans fékk ég lánað úr bókinni
200 Crochet blocks eftir Jan Eaton.
Þessi bók er bara snilld, kenndi mér ótrúlega mikið!
200 Crochet blocks eftir Jan Eaton.
Þessi bók er bara snilld, kenndi mér ótrúlega mikið!
No comments:
Post a Comment