19 October 2012

65 dagar til jóla. 3 dagar í stærðfræðipróf.

Fyrir mig er það alltaf óspennandi hugmynd að læra stærðfræði. Og í dag er ég sko engan veginn að nenna að læra fyrir stærðfræðiprófið sem ég fer í á mánudaginn. Móri kallinn er veikur og það var sko ekki mikið sofið í nótt.

Svo er hugurinn bara allur við komandi jól og jólaskraut.

Ég keypti mér jólaskraut af Etsy. Fann jólaskraut í byrjun þessa árs sem ég hef ekki getað hætt að hugsa um svo ég ákvað að leyfa mér smá lúxus. Seljandinn er PicardCreative.


Fékk að velja mér 6 skraut og borgaði fyrir 30 dollara. Með sendingakostnaði var ég að borga 4.800 kr. Sem er ekki slæmt. En ég er ekki alveg svo sátt við tollinn. Þurfti að borga þeim tæpar 2.800 kr. Finnst það frekar blóðugt, hélt að þeir tækju bara 25%. Og hvað er málið með að taka toll af sendingarkostnaði? Það er bara ljótt.



Þetta er ótrúlega skemmtileg hugmynd.
Þetta eru sem sé dósalok - eins og af ORAbaunum - sem hún er búin að skreyta. 

Þetta jólaskraut er soldið uppáhalds því þetta er svo algerlega e-ð sem kærastinn myndi segja.

Þetta er pottþétt ekki jólaskraut fyrir alla en þetta er akkurat okkar húmor.


CAL teppið mitt gengur ágætlega. Ég gríp svona í það þegar ég er ekki að gera neitt annað og langar í smá slökun sem aðeins hekl getur veitt manni.




2 comments:

  1. Hæ hæ

    Þetta er æðislegt teppi hjá þér, er hægt að kaupa uppskriftina á íslensku?

    ReplyDelete
    Replies
    1. Það er í vinnslu að þýða uppskriftina. Ég veit ekki alveg hvernig þetta verður, er að ræða við þá sem eiga uppskriftina. Vertu endilega með okkur í þessum hóp og það kemur hingað inn þegar það verður hægt að fá uppskriftina á íslensku.

      http://www.facebook.com/events/423943784332169/

      Delete