Með The Knook þá prjónaru með heklunál. Svo á íslensku gæti þetta kallast prekl.
Mynd frá I'd rather be Knooking |
The Knook er sem sé heklunál með spotta. Ekki ósvipað og rússnesk heklunál. Í rússnesku hekli þá heklaru áfram og svo aftur á bak til baka en með The Knook þá preklaru áfram rennir lykkjunum niður á spottann og preklar svo til baka.
Í þessu myndbandi er sýnt hvernig þetta er gert. Myndbandið er þó svo langdregið að það er kvalarfullt. Vildi að svona óþolinmótt fólk gæti hraðspólað á YouTube.
Fyrst var ég ekki alveg að sjá hvaða möguleika þetta prekl hefði uppá að bjóða en eftir því sem ég skoða þetta meir þá sé ég að það er hægt að kaupa nokkrar bækur með prekl uppskriftum.
Það er spurning hvort mar eigi að skella sér á The Knook og byrja að prekla?
Hægt er að kaupa þetta í gegnum Amazon eða heimasíðu Leisure Arts.
Hefur e-r prófað þetta?
Áhugavert! Þetta virkar samt pínu eins og rosalega seinleg aðferð við að prjóna, kemur amk alveg eins út og prjón :)
ReplyDeleteVá! Ég hafði aldrei séð þetta! Ég væri til í að prufa þetta! Ég held að ég eigi eina rússneska heklunal.
ReplyDeleteTakk fyrir að deila þessu!
ég hef ekki séð þetta áður en lítur út fyrir að vera nokkuð spennandi! Kannski þetta sé svona millileið... annað hvort fyrir heklara sem nenna ekki að prjóna - eða prjónara sem eru komnir með leið á því að prjóna með venjulegum hætti :-) Takk fyrir að deila þessu!
ReplyDeleteÉg held að það sé ekki hægt að nota rússneska heklunál í þetta því maður verður að geta togað spottann í burtu í annarri hverri umferð...nema mar geti líka gert það á rússneskri nál.
ReplyDeleteJá þetta er líklegast frekar tilgangslaust ef mar er prjónari. Held einmitt að heklurum sem prjóna ekki gæti fundist þetta sniðugra c",)