Ég er alltaf að gera fleiri krukkur og þar sem það er heill hellingur af þeim hérna heima þá er eins gott að finna e-r not fyrir þær.
Það er hægt að nota þær...
...undir blóm
...fyrir heklunálar
...undir snyrtidót
...sem lampa
...og auðvitað sem kertastjaka
Síðustu viku heklaði ég tvær nýjar týpur af krukkum til að gefa sem útskriftargjafir.
Sumarlitablanda
Þessar minna mig á býflugnabú
Bleikar krukkur með jarðaberjamynstri
Innpakkað og fínt
FLOTTAR krukkur!!! Er erfitt að gera þetta?
ReplyDeleteÉg er að byrja að hekla og vil gjarnan að læra meira! :)
Nei þetta er nefninlega alls ekki erfitt. Það sem mér fannst erfiðast fyrst var að vera með svona litla nál en það var mjög fljótt að venjast.
ReplyDeleteRosalega fallegt hjá þér :)
ReplyDeleteKv, Elísabet Kj.