Fastapinnar að framan
Þessi aðferð er frábær til þess að tengja saman ferninga sem eru ekki allir í sama lit. Þessi aðferð hentar best
Þessi aðferð er frábær til þess að tengja saman ferninga sem eru ekki allir í sama lit. Þessi aðferð hentar best
ef allir ferningarnir hafa jafn margar lykkjur.
Leggið ferningana saman með réttuna út á við.
Stingið nálinni í aftari hluta lykkjunar í hvorum ferning.
Gerið fastapinna.
Stingið nálinni í aftari hluta lykkjunar í hvorum ferning.
Gerið fastapinna.
Í hornunum geri ég fastapinna utan um loftlykkjurnar en ekki ofan í þær.
Ef hornið er 3 loftlykkjur þá geri ég 2 fastapinna þegar ég fer í hornið í fyrsta sinn. Í annað sinn geri ég 1 fastapinna og geri 1 loftlykkju svo það myndist ekki tog þegar ég fer yfir fastapinnana sem eru þar fyrir.
(smellið á myndirnar til þess að stækka þær)
(smellið á myndirnar til þess að stækka þær)
Nokkrar myndir af ferningum
sem eru tengdir saman með þessari aðferð:
sem eru tengdir saman með þessari aðferð:
Brúnirnar á tengingunni eru frekar upphleyptar fyrst um sinn.
Með tímanum minnkar það því það teygist úr teppinu þegar það er notað.
Með tímanum minnkar það því það teygist úr teppinu þegar það er notað.
Stundum getur verið erfitt að koma orðum að einföldum hlutum.
Ef þér finnst leiðbeiningarnar ekki nógu skiljanlegar
eða þú rekst á villur endilega láttu mig vita svo ég geti gerti betur
Ef þér finnst leiðbeiningarnar ekki nógu skiljanlegar
eða þú rekst á villur endilega láttu mig vita svo ég geti gerti betur
Ég segi það enn og aftur þetta er frábær síða :) þetta litla sem ég kann að hekla lærði ég af þessari síðu, kann reyndar ekki mikið en það er annað mál. Kem reglulega og skoða allt þetta skemmtilega sem þú ert að segja frá og sýna, takk fyrir mig. kv. Sigga
ReplyDeleteAlltaf svo gaman að heyra að síðan komi að gagni :)
Delete