Tvo handa Móra mínum og tvo handa Aþenu litu systurdóttur minni.
Ég notaði Mandarin Petit garn og heklunál nr. 3,5 í fyrstu tvo smekkina. Ég hekla hins vegar svo fast að þeir eru ekkert rosalega stórir. Svo ég heklaði næstu tvo með nál nr. 3,75 og það munaði alveg smá á stærðinni. Hins vegar finnst mér þeir smekkir ekki nógu fínir því þeir eru ekki jafn þétt heklaðir.
Uppskriftin er klassísk og fann ég hana á netinu fyrir nokkru síðan. Sem betur fer prentaði ég uppskriftina út því hlekkurinn virkar því miður ekki lengur.
Hann Móri minn er samt soldið fyndinn með smekkinn sinn því hann lítur soldið út eins og hann sé með prestkraga...en sætur er hann samt.
flottir smekkir og enn flottari strákur :-) Það er svona hringasmekksuppskrift í Þóru Heklbókinni - ekki alveg einsog þessi en þó svipaður. Vona að hendin fari að lagast...
ReplyDeletep.s. gaman að þú skulir fíla nýju spöngina mína - mæli með því að gera svona - einfaldara en manni grunar og áhrifaríkt....
Ég á einmitt Þóru. Er að hugsa um að gera hringsmekk og snudduband úr henni þegar hann er aðeins stærri.
ReplyDeleteÞessi spöng er bara snilld. Var búin að sjá hana á Pinterest - og pinna auðvitað - áður en ég sá hana á blogginu þínu. Hún fer á to do listann :)
Sætir smekkir!
ReplyDeleteNotaðirðu þessa uppskrift: http://www.simnet.is/flytisida/pattar/smekkur-hekl.txt ?
Eg er nefnilega að leita að svona uppskrift :)
Já þetta er uppskriftin sem ég fór eftir :)
ReplyDelete