02 January 2013

2/30



Garn: Kambgarn
Litir: Tómatrauður (0917), Hvítur (0051), Dökkblár (0968)
Nál: 3,5 mm

Virkilega skemmtilegur ferningur að hekla og vel skrifuð uppskrift. Lenti ekki í neinu erfiðleikum með neitt - og breytti engu sem er sjaldgjæft þegar kemur að mér.

Ferningurinn er mjög einfaldur og á skalanum 1 til 5 (auðvelt til erfitt) myndi ég gefa honum 1 fyrir vana og 2 fyrir byrjendur þar sem það er mikið af tvö- og þreföldum stuðulum. Mæli hiklaust með honum.


2 comments:

  1. Sæl Elín

    Ég sendi þér póst í fyrradag á handodi.heklarinnhjágmail.com. Mig langar til að kaupa hjá þér uppskriftina að lævirkjahekl teppinu.
    Kveðja, Þóra

    ReplyDelete