10 June 2012

Allt er framförum háð

Mér miðar hressilega áfram með teppið mitt. Er búin að vera að hekla það í ca. 5 vikur núna og það er orðið ca. 150 cm á lengd. Fer bráðum að vera búin - vonandi - því það eru bara 30 cm eftir.

Ég er ekkert smá ánægð með þetta teppi og verð meira og meira hrifin af því eftir því sem ég hekla meira og meira.


Ég ákvað að hafa litina ekki alltaf í sömu röð...en auðvitað er regla í óreglunni...ég er ekki fær um neitt annað.

Þó ég sé hrifin af öllum þessum litum...


...þá er þetta litacombo alveg uppáhalds.
Baby grænn, blár og hvítur glimmer.
Langar að gera sér teppi með þessum litum.


Þegar ég er búin að hekla teppið sjálft þá er bara eftir að ganga frá nokkrum endum.
Vildi óska að ég færi að venja mig á það að hekla endana inní heklið jafnóðum.
Það er erfitt að kenna gömlum hundi að sitja.


Aþena systurdóttir mín er svo hrifin af teppinu að hún bókstaflega slefar yfir því.




5 comments:

  1. Þetta er rugl flott teppi, litirnir æði og fínt að hafa litaröðina óreglulega!

    Er búin að vera að prjóna eins og kreisíness síðustu vikur en er farið að langa að hekla meira og er með eitt heklað teppi á to do listanum, búin að kaupa garn og allt en "má ekki" byrja á því fyrr en ég er búin með tvö prjónaverkefni sem ég verð að klára sem fyrst (smá spark í rassinn)...annað prjónaverkefnið er randateppi og ég ákvað að hafa litaröðina alveg óreglulega og notaði þetta hér til að búa hana til: http://www.biscuitsandjam.com/stripe_maker.php og kræst hvað mér finnst erfitt að hafa hlutina svona óreglulega þótt þetta sé að koma vel út. Reglufríkið innra með mér er alveg á bömmer yfir þessu verkefni :)

    ReplyDelete
  2. Rosalega flott :) En dí ég myndi ekki meika að ganga frá öllum þessum endum... svo þægilegt að hekla bara yfir endana ;)

    ReplyDelete
  3. þetta teppi er æðislegt og litasamsettningin alveg æðisleg.
    ég er algjör byrjandi í hekli og hef ennþá ekki lagt í stærra hekl enn bara blóm og utan um eina krukku, enn þetta blogg þitt er æðislegt og hvetur mig áfram í að læra meira um heklið :D

    ReplyDelete
  4. Anna: Þúrrt auðvitað bara snillingur í að finna svona snilldar síður. Þessi fer í uppáhalds.

    Ólöf: Ég trúi því að það sé þægilegt að hekla yfir endana...þarf að fara að venja mig á þetta.

    Sigrún: Alltaf gaman að heyra að síðan hvetur aðra til að hekla meira c",)

    ReplyDelete
  5. Hvaða hekl uppskrift er þetta?
    Og hvar væri hægt að fá uppskriftina af Lævirkjaheklinu?

    ReplyDelete