10 May 2012

Nýtt teppi

Er byrjuð að hekla nýtt teppi. Sófateppi í fullorðinsstærð. Ég elska að hekla almennt. En að hekla teppi er án efa mitt uppáhalds. Svo ég er mjög spennt.

Fann ekki alla litina sem ég vildi í sömu garn tegund svo ég fór um "allan bæ" að finna litina sem mig langaði í.

Bleikt og blátt Kartopu úr A4

Rautt Aran úr Hagkaup

Gult Carolina úr Hagkaup

Baby grænt King Cole úr Rúmfó

Bumbo glimmergarn hvítt/beis og rautt frá Ömmu

Rautt glimmer Capri garn líka frá Ömmu

Þegar ég valdi mér liti til að hafa sá ég þetta bara fyrir mér í hausnum en var alls ekki viss um hvort þetta myndi passa. Ekki fyrr en ég var búin að fara eina umferð með öllum litunum. Mér finnst þetta smellpassa og er ekkert smá ánægð með teppið só far.





Er með rúmlega 1 og 1/2 kg af garni, vonandi dugar það til verksins. Set inn fleiri myndir þegar þetta er búið.



6 comments:

  1. OMG hvað þetta er fallegt teppi! Læk it alot!
    kv Jóhanna Björg

    ReplyDelete
  2. Þetta teppi er ÆÐISLEGT
    Flott áferð á því, hvernig fæst hún? Kemur einhvern tímann uppskrift? ;)

    ReplyDelete
  3. Uppskriftin er hér að finna á ensku.
    http://www.craftyarncouncil.com/nov_crochproj.html
    Það er í vinnslu að þýða hana.

    ReplyDelete
  4. Frábært! Ég held ég bíði eftir þinni þýðingu, uppskriftirnar þínar eru svo skýrar og góðar. Mér finnst líka stundum ekki alveg ljóst hvort um sé að ræða enska eða ameríska uppskrift og mismunurinn milli UK og US er bara ruglandi.

    ReplyDelete