09 February 2011

Gamalt hekl

Ég elska gamalt hekl. Þegar ég er að skoða hekl - á öllum þeim stöðum sem ég skoða hekl - þá er oft mikið af því sama út um allt. Þess vegna elska ég þegar ég sé hekl sem ég hef aldrei séð áður. Og mjög oft er það gamalt hekl.

Í dag stökk ég aðeins inn í Rauðakross búðina í Mjóddinni og þótt það væri ekki mikið af hekli þar þá fann ég þetta stykki. Ég hef ekkert að gera við það. Mér finnst það ekkert sérstaklega fallegt á litinn.

EN ég hef aldrei séð ferninga festa saman svona. Þar sem stykkið kostaði bara 300 kall ákvað ég að kaupa það svo ég geti hermt eftir því. Ég hef séð svo mörg teppi sem eru ferningar í mismunandi litum og svo er heklað í kringum þá með hvítu - og mér finnst það bara vængefið flott. Ég sé mig alveg geta nýtt þetta stykki í e-ð þannig.




Myndir frá öðrum heklurum af teppum sem heilla mig



Ég hef aldrei nægilega mikinn tíma til að hekla allt sem mig langar að hekla. Samt hekla ég alveg helling. Svona lítur dæmigerður eftirmiðdagur út mér. Eftir vinnu. Eftir að búið er að fara í búðina. Eftir að komið er heim. Er kveikt á sjónvarpinu og um leið og Dr. Phil byrjar er heilagur Elínar-tími þar sem ég hekla.

Hálf hekluð krukka - hekl uppskrift til að þýða - heklað stykki - tölvan - ab mjólk

Þegar sú stund er búin þá er best að standa upp og fara að sinna skyldustörfum heimilisins.

6 comments:

  1. Vá hvað ég kannast við þetta, að hafa ekki nægilegan tíma til að hekla allt sem mann langar til :) En bjarta hliðin er þó sú að þá er maður ekki verkefnalaus á meðan ;-) Fröken Pollýanna mætt!
    Líst vel á þetta hekl sem þú fjárfestir í af RKÍ, skemmtilegt! Hef ekki séð svona áður - og er einmitt ansi dugleg að vafra um heklheima vefsins :)

    Bestu kveðjur,
    Önnur heklmaníutútta

    ReplyDelete
  2. Nákvæmlega mar er aldrei verkefnalaus. Versta við mig er að ég á það til að klára ekki það sem ég byrja á því að ég fæ svo margar hugmyndir sem ég verð að framkvæma NÚNA!
    En það er gaman að þessu öllu :)

    ReplyDelete
  3. Ólöf: Já mér finnst það svakalega fallegt. Hef séð aðra útgáfu þar sem blómin eru öll hvít svo eru ferningarnir mislitir og allt heklað saman með hvítu. Alveg ótrúlega flott!

    ReplyDelete
  4. Æðislega flott öll teppin og alltaf jafn gaman að skoða síðuna þína :)

    ReplyDelete
  5. www.orlindosaraiva.pt

    ReplyDelete